Öryggiskóli iðnaðarins
    NámskeiðFréttirStyrkirUm okkur
    Fyrstu mínúturnar skipta máli
    Alþjóðlega aðferðafræðin HOP

    Fyrstu mínúturnar skipta máli

    Skyndihjálp á verkstað

    Næstu námskeið

    Skyndihjálp á verkstaðNámskeið

    Skyndihjálp á verkstað

    Fyrstu mínúturnar skipta máli

    Þetta námskeið snýst um eitt: hvað þú gerir fyrstu mínúturnar þegar eitthvað fer úrskeiðis — áður en sjúkraflutningur berst.

    Á fjórum klukkustundum færðu verklega þjálfun í endurlífgun, notkun hjartastuðtækis (AED), blóðstöðvun og sáraumbúðum, ásamt því að læra að bregðast við þeim slysum sem helst verða í iðnaðar- og byggingarumhverfi — rafmagnsslysum, aflimunum, beinbrotum, brunasárum og bráðaveikindum.

    Áherslan er á verklega æfingu, því viðbragð er færni sem lærist ekki úr glærum einum saman. Þú ferð heim með sjálfstraust til að taka stjórn þegar mest á reynir.

    Nánar um námskeið
    Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinumNámskeið

    Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum

    Breyttar áherslur

    Við kynnum nýja nálgun í öryggisfræðslu sem hentar öllum sem koma að skipulagi og stjórnun vinnustaða. Nálgunin styrkir teymi í að skapa vinnuumhverfi þar sem traust, gagnsæ samskipti og stöðugur lærdómur eru í forgrunni. Hún stuðlar að breyttum viðhorfum og dýpri skilningi á hvernig atvik, frávik og hættur verða til. Hvernig hægt er að bregðast við þeim á markvissari og áhrifaríkari hátt.

    • Fyrir stjórnendur, verkstjóra, verkefnastjóra og aðra lykilaðila í bygginga- og mannvirkjageiranum
    • Hagnýtar og raunhæfar aðferðir sem má innleiða strax í daglegu starfi
    • Hálfs dags námskeið.
    Nánar um námskeið
    Öryggi í verkiNámskeið

    Öryggi í verki

    Öryggismenning - breytt hugsun

    Öryggi í verki snýst ekki um reglur á blaði heldur um handtökin sjálf og hugsunina á bak við þau. Markmiðið er að öryggi verði hluti af daglegum vinnubrögðum — eitthvað sem situr í fingrunum og hugsuninni frekar en að vera sérstakt átak sem gripið er til við og við.

    Nánar um námskeið

    Fréttir

    Fyrstu þátttakendur hæstánægðir með námskeið Öryggisskólans
    3. mars 2026
    Fréttir
    Fyrstu þátttakendur hæstánægðir með námskeið Öryggisskólans

    Mikil ánægja ríkti meðal fyrstu þátttakenda á námskeiði Öryggisskólans, Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum, sem fram fór í lok febrúar.

    Ásdís Gréta
    24. febrúar 2025
    Tilkynning
    Öryggisskóli iðnaðarins stofnaður og Ásdís Gréta ráðin leiðtogi

    Öryggisskóli Iðnaðarins var stofnaður nú í upphafi árs. Skólinn er í jafnri eigu Iðunnar fræðsluseturs og Rafmenntar.

    Fulltrúar Öryggisskóla iðnaðarins skoða sænskan skóla
    18. febrúar 2025
    Fréttir
    Fulltrúar Öryggisskóla iðnaðarins skoða sænskan skóla

    Fulltrúar frá Öryggisskóla iðnaðarins sem var stofnaður í byrjun árs lögðu leið sína til Svíþjóðar til að skoða sambærilegan sænskan öryggiskóla.

    Öryggisskóli Iðunnar og Rafmenntar í undirbúningi
    25. september 2024
    Tilkynning
    Öryggisskóli Iðunnar og Rafmenntar í undirbúningi

    Í kvöldfréttum RÚV þann 19. september kom fram að Iðan og Rafmennt vinna nú að stofnun öryggisskóla, sem verður opnaður á nýju ári. 

    Skráning á póstlista

    Öryggisskóli iðnaðarins

    Stórhöfði 27, 110 Reykjavík

    Kt. 610125-0770

    546-7900

    oryggisskolinn@oryggisskolinn.is

    Tenglar

    • Námskeið
    • Fréttir
    • Styrkir
    • Um okkur
    Fylgdu okkur:
    FacebookFacebookLinkedInLinkedInInstagramInstagram

    © 2026 Öryggisskóli iðnaðarins. Allur réttur áskilinn.

    Í sameiginlegri eigu Iðunnar og Rafmenntar

    Persónuverndarstefna•Öryggisstefna•EKKO-stefna•