Öryggiskóli iðnaðarins
    NámskeiðFréttirStyrkirUm okkur
    Til baka í fréttir
    Fulltrúar Öryggisskóla iðnaðarins skoða sænskan skóla
    18. febrúar 2025
    Fréttir
    FacebookLinkedIn

    Fulltrúar Öryggisskóla iðnaðarins skoða sænskan skóla

    Fulltrúar frá Öryggisskóla iðnaðarins sem var stofnaður í byrjun árs lögðu leið sína til Svíþjóðar til að skoða sambærilegan sænskan öryggiskóla. Sendinefndin innihélt fulltrúa Samtaka iðnaðarins, Samtaka rafverktaka, Rafmenntar, Iðunnar og Vinnueftirlitsins.

    Öryggisskóli iðnaðarins er í jafnri eigu Iðunnar fræðsluseturs og Rafmenntar. Meginmarkmið skólans er að stuðla að aukinni öryggismenningu í iðnaði og þar með fækkun slysa. Skólinn mun bjóða fræðslu og þjálfun og er unnið að því að skólinn geti hafið starfsemi síðar á árinu. Megináhersla verður lögð á byggingariðnaðinn. 

    Ásdís Gréta Hjálmarsdóttir hefur verið ráðin sem Leiðtogi Öryggisskóla iðnaðarins og hóf hún störf í byrjun febrúar. Á vef Iðunnar er hægt að nálgast viðtal við Ásdísi sem er menntuð sem bifvélavirki og með B.Sc. í orku- og umhverfistæknifræði frá Háskóla Íslands. 

    Öryggisskóli iðnaðarins

    Stórhöfði 27, 110 Reykjavík

    Kt. 610125-0770

    546-7900

    oryggisskolinn@oryggisskolinn.is

    Tenglar

    • Námskeið
    • Fréttir
    • Styrkir
    • Um okkur
    Fylgdu okkur:
    FacebookFacebookLinkedInLinkedInInstagramInstagram

    © 2026 Öryggisskóli iðnaðarins. Allur réttur áskilinn.

    Í sameiginlegri eigu Iðunar og Rafmenntar

    Persónuverndarstefna•Öryggisstefna•EKKO-stefna