Öryggiskóli iðnaðarins
    NámskeiðFréttirStyrkirUm okkur

    Greiðsluskilmálar

    Greiðsla námsgjalds

    Námsgjald á að greiða áður en nám hefst og telst skráning ekki gild fyrr en búið er að ganga frá greiðslu. Greiðsla verður skuldfærð af korti 8 dögum áður en námskeið hefst nema annað sé tekið fram.

    Greiðslumöguleikar

    Mögulegt er að greiða fyrir námskeið með helstu kredit- og debetkortum og fer greiðslan í gegnum örugga greiðslugátt.

    Móttaka umsóknar er staðfest með tölvupósti. Ef þér berst ekki staðfesting á þennan hátt skaltu hafa samband við Öryggisskólann í síma 546-7900 eða með því að senda tölvupóst á oryggisskolinn@oryggisskolinn.is.

    Endurgreiðsla

    Hægt er að fá námskeið endurgreitt í sérstökum tilfellum, t.d.:

    • Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið oryggisskolinn@oryggisskolinn.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Öryggisskólinn áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
    • Ef lágmarksfjöldi þátttakenda næst ekki og námskeið er fellt niður endurgreiðir Öryggisskólinn námsgjaldið að fullu. Þetta á einnig við ef námskeið er flutt á nýja dagsetningu og skráður þátttakandi getur ekki nýtt sér námskeiðið.

    Vinsamlegast athugið: Eftir að nám er hafið hefur þátttakandi skuldbundið sig til að greiða allt námsgjaldið og er því ekki hægt að fá það fellt niður eða endurgreitt.

    Öryggisskilmálar

    Farið er með öll gögn og upplýsingar sem þátttakendur gefa upp í tengslum við skráningu á námskeið hjá Öryggisskólanum sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila.

    Fyllsta öryggis er gætt með greiðslur fyrir námskeið og fara greiðslur með greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu.

    Lög og varnarþing

    Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

    Skráning á póstlista

    Öryggisskóli iðnaðarins

    Stórhöfði 27, 110 Reykjavík

    Kt. 610125-0770

    546-7900

    oryggisskolinn@oryggisskolinn.is

    Tenglar

    • Námskeið
    • Fréttir
    • Styrkir
    • Um okkur
    Fylgdu okkur:
    FacebookFacebookLinkedInLinkedInInstagramInstagram

    © 2026 Öryggisskóli iðnaðarins. Allur réttur áskilinn.

    Í sameiginlegri eigu Iðunnar og Rafmenntar

    Persónuverndarstefna•Öryggisstefna•EKKO-stefna•